Fotbolti.net
17.08.26 - 21:14
Helgi Inguson

Haddi búinn að ræða við stjórn KA - „Við erum með plan"

Auglýsing
Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA

Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KA heimsótti Val í stórkostlegum leik á Hlíðarenda. KA leiddi 1-3 eftir fyrri hálfleikinn en Valsmenn komu til baka og leikar enduðu 4-4. Fótbolti.net ræddi við Hallgrím Jónasson, þjálfara KA, eftir leik.
Lestu um leikinn: Valur 4 - 4 KA
„Þetta er smá blönduð tilfinning, ég er ótrúlega ánægður með liðið mitt stóran hluta leiksins. Við höfðum ekki skorað í þrjá leiki og skoruðum fjögur mörk í dag og hefðum getað skorað meira. Mér fannst allir vera að leggja sig fram og ég var ánægður með strákanna," sagði Hallgrímur.

„Mér fannst við í seinni hálfleik vera aðeins of litlir í okkur, í okkar eigin teig. Við neyddumst til þess að gera nokkrar breytingar á strákum sem eru líkamlega sterkir. Við erum fyrir það með mikið af meiðslum. Ég hefði vonast til þess að við værum aðeins stærri í okkur í lokin, urðum kannski smá hræddir. Inn í okkar teig finnst mér Valur skapa alltof mikið eftir fyrirgjafir."

KA er í 11. sæti deildarinnar, einu stigi á eftir FH og ÍBV. Hallgrímur segir markmið liðsins vera skýrt, að leika í Bestu deildinni næsta sumar.

„Staðan er betri en hún var fyrir leikinn, við fengum stig. Ég veit ekki hvað ég á að segja, hvort það séu fjögur lið í fallbaráttu. Þetta er bara ekki flókið, það eru átta leikir eftir og við þurfum að fá fleiri stig en liðin í kringum okkur. Með hugarfarinu sem ég sá í dag er ég viss um að það eigi eftir að koma fleiri stig."

„Ég er búinn að ræða við stjórn KA. Við erum búin að tala saman og við erum með plan. Því miður höfum við ekki verið að vinna fótboltaleiki. Ef þú kíkir á síðustu fimm leiki þá ættum við að vera með aðeins fleiri stig. Við höfum ekki náð að skora, það hefur verið vandamálið," sagði Hallgrímur að lokum
Haddi hvetur fjölmiðla til að gefa Danijel Djuric smá frið

Haddi hvetur fjölmiðla til að gefa Danijel Djuric smá frið

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.