17.09.26 - 22:04
Elvar Geir Magnússon
Eistarnir sem koma til Íslands - Sá besti í markinu og tveir 18 ára nýliðar

Karl Hein er markvörður eistneska landsliðsins.

Mynd: EPA

Jurgen Henn landsliðsþjálfari Eistlands.

Mynd: EPA

Henri Anier er markahæstur í eistneska hópnum.

Ísland tekur á móti Eistlandi á Laugardalsvelli laugardaginn 26. september en þá hefja strákarnir okkar leik í C-deild Þjóðadeildarinnar. Svo koma leikir gegn Lúxemborg úti og Búlgaríu heima. Glugganum lýkur á öðrum leik við Eistland, þá á útivelli.
Ísland er í 74. sæti á styrkleikalista FIFA en Eistland í 127. sæti. Íslenski hópurinn var kynntur í vikunni og einnig sá eistneski og var ýmislegt í vali Jürgen Henn landsliðsþjálfara sem athygli vakti.

TENGT EFNI
Landsliðshópurinn - Ísak Snær og Rúnar Alex koma inn
Markvörðurinn besti leikmaður liðsins
Besti leikmaður Eista er markvörðurinn Karl Hein sem er 24 ára og er aðalmarkvörður þýska Bundesliguliðsins Werder Bremen. Hann varði vítaspyrnu gegn Köln í síðustu umferð og var valinn í lið umferðarinnar.
Hein, sem var um skeið í herbúðum Arsenal, varð þess heiðurs aðnjótandi að vera valinn fótboltamaður ársins í Eistlandi á síðasta ári.
Leikjahæstir í hópnum eru fyrirliðinn Karol Mets sem spilar fyrir Bochum og Henri Anier sem er hjá Paide en báðir eru með 104 landsleiki á bakinu. Anier er jafnframt langmarkahæstur í hópnum með 23 landsliðsmörk.
Gaf ekki kost á sér vegna leikjaálags
Miðjumaðurinn Rocco Robert Shein gaf ekki kost á sér og hlaut það nokkuð hörð viðbrögð. Allavega það hörð að hann sá sig knúinn til að útskýra ákvörðun sína. Hann segist hafa tekið þessa ákvörðun heilsu sinnar vegna, líkamlegt álag sé mikið vegna leikjafjölda en hann gekk í raðir enska B-deildarliðsins Portsmouth í glugganum frá Frederikstad í Noregi án þess að fá sumarfrí.
Hinn tvítugi miðjumaður Soufian Gouram sem er hjá Herthu í Berlín afþakkaði þá sæti í hópnum. Gouram hefur leikið fyrir yngri landslið Eistlands en ekki A-landsliðið. Hann er löglegur með þýska og marokkóska landsliðinu líka og virðist vera að meta möguleika sína og kosti.
Tveir táningar valdir
Það er talsvert mikið um meiðsli hjá Eistunum og valdi Henn því tvo 18 ára nýliða í hópinn. Annar af táningunum er vinstri kantmaðurinn Sander Alamaa sem leikur fyrir Flóru í Tallinn og er með frábæra tölfræði í eistnesku deildinni. Hinn heitir Maksimilian Skvortsov, er sóknarmiðjumaður Levadia Tallinn og með mikinn sköpunarmátt.
Landsliðshópur Eistlands
Markverðir:
Karl Jakob Hein (13.04.2002) – Werder Bremen (GER) – 47 caps / 0 goals
Matvei Igonen (02.10.1996) – Degerfors IF (SWE) – 17 / 0
Karl Andre Vallner (28.02.1998) – FCI Levadia – 5 / 0
Varnarmenn:
Karol Mets (16.05.1993) – VfL Bochum (GER) – 104 / 0
Märten Kuusk (05.04.1996) – Polonia Warsaw (POL) – 44 / 0
Maksim Paskotši (19.01.2003) – KAA Gent (BEL) – 40 / 1
Frank Liivak (07.07.1996) – FCI Levadia – 27 / 3
Rasmus Peetson (03.05.1995) – FCI Levadia – 26 / 2
Michael Schjönning-Larsen (02.02.2001) – Kilmarnock FC (SCO) – 20 / 0
Robi Saarma (20.05.2001) – Pardubice (CZE) – 16 / 1
Joseph Saliste (10.04.1995) – FCI Levadia – 11 / 0
Erko Jonne Tõugjas (05.07.2003) – Halmstad BK (SWE) – 9 / 0
Tanel Tammik (14.06.2002) – FCI Levadia – 2 / 1
Sander Alamaa (09.02.2008) – FC Flora – 0 / 0
Miðjumenn:
Mattias Käit (29.06.1998) – FC Thun (SUI) – 66 / 11
Martin Miller (25.09.1997) – Paide Linnameeskond – 40 / 2
Markus Poom (27.02.1999) – AS Trencin (SVK) – 35 / 0
Markus Soomets (02.03.2000) – Kolding IF (DEN) – 24 / 0
Mihkel Ainsalu (08.03.1996) – FCI Levadia – 24 / 0
Kevor Palumets (21.11.2002) – FC Košice (SVK) – 21 / 1
Patrik Kristal (12.11.2007) – FC Thun (SUI) – 14 / 0
Maksimilian Skvortsov (20.12.2007) – FCI Levadia – 0 / 0
Sóknarmenn:
Henri Anier (17.12.1990) – Paide Linnameeskond – 104 / 23
Alex Matthias Tamm (24.07.2001) – NK Olimpija Ljubljana (SVN) – 21 / 2
Karel Mustmaa (08.08.2005) – FK Cukaricki (SRB) – 5 / 1
Mattias Männilaan (08.09.2001) – Nõmme Kalju FC – 3 / 0