Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 17. október 2018 16:33
Elvar Geir Magnússon
Eysteinn Húni áfram með Keflavík - Janko aðstoðar (Staðfest)
Eysteinn Húni Hauksson.
Eysteinn Húni Hauksson.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Milan Stefán Jankovic.
Milan Stefán Jankovic.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eysteinn Húni Hauksson verður áfram þjálfari Keflavíkur en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Keflavík féll úr Pepsi-deildinni í sumar án þess að vinna leik. Eysteinn byrjaði tímabilið sem aðstoðarmaður Guðlaugs Baldurssonar en tók við liðinu þegar Guðlaugur lét af störfum.

Milan Stefán Jankovic verður Eysteini til aðstoðar en Milan hefur um margra ára skeið unnið gott starf hjá Grindavík og var aðstoðarmaður Óla Stefáns Flóventssonar.

Aðeins tvö félög í Inkasso-deildinni eiga eftir að ráða þjálfara fyrir næsta sumar; Leiknir og Fram.

Hér að neðan má sjá tilkynninguna frá Keflavík.

Fréttatilkynning frá Keflavík:

Knattspyrnudeild Keflavíkur hefur gert samninga til þriggja ára við nýtt þjálfarateymi sem fær það hlutverk að byggja upp nýtt og sterkara Keflavíkurlið.

Eysteinn Húni Hauksson hefur verið ráðinn aðalþjálfari meistaraflokks karla. Í samstarfi við Eystein verður unnið markvisst að því að halda áfram að byggja upp unga og efnilega leikmenn Keflavíkur.

Áhersla verður lögð á það að gefa ungu fólki tækifæri á að láta drauma sína rætast og bæta við titlum í safn sigursæls Keflavíkurliðs.

Til aðstoðar við uppbygginguna og sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hefur knattspyrnudeild Keflavíkur einnig gert samning við Milan Stefán Jankovic sem kemur frá Grindavík. Janko er einn örfárra þjálfara á Íslandi sem lokið hafa UEFA Pro þjálfaragráðu, sem er æðsta gráða sem hægt er að afla sér sem þjálfari. Hann var áður aðalþjálfari Keflavíkur frá árinu 2003 og kom liðinu í efstu deild á fyrsta ári og vann bikarmeistaratitil árið á eftir með ungan og efnilegan hóp leikmanna. Janko mun einbeita sér að því að byggja upp afrekshugsun, tæknilega getu og keppnishug leikmanna meistaraflokks Keflavíkur.

Þá hefur einnig verið gerður áframhaldandi samningur við Ómar Jóhannsson um markmannsþjálfun meistaraflokka karla og kvenna auk þess sem hann mun koma að þjálfun efnilegra yngri markmanna félagsins.

Gunnar Magnús áfram með kvennaliðið
Gunnar Magnús Jónsson og Haukur Benediktsson munu halda áfram sem aðal- og aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna sem mun leika í Pepsí deild á næsta ári.

Knattspyrnulið Keflavíkur hafa verið með sigursælustu liðum landsins um árabil. Félagið hefur fjórum sinnum unnið Íslandsmeistaratitil og fjórum sinnum orðið bikarmeistari. Fjöldi uppaldra leikmanna Keflavíkur hafa leikið fyrir landslið Íslands og í dag eru fjórir uppaldir leikmenn félagsins atvinnumenn hjá félögum í Evrópu. Eftir erfitt keppnistímabil sem nú er að baki, hefur stjórn félagsins ákveðið að horfa fyrst og fremst inná við í starfi félagsins fyrir framtíðina. Lögð verður megin áhersla á að byggja upp sterkan hóp uppaldra leikmanna og veita þeim tækifæri á að sína fram á að þeir geti staðist samanburð við bestu leikmenn landsins. Einnig verður lögð áhersla á að byggja upp aðstöðu og innviði til að laða að unga og efnilega leikmenn sem vilja koma til félagsins og þroskast sem knattspyrnumenn og einstaklingar í metnaðarfullu umhverfi undir handleiðslu öflugra þjálfara.

Athugasemdir
banner
banner