Fotbolti.net
17.10.19 - 10:20
Elvar Geir Magnússon

Redknapp: Hægt að afhenda Liverpool bikarinn strax

Harry Redknapp.

Harry Redknapp.

Canon

Mynd: Getty Images

Harry Redknapp segist handviss um að Liverpool verði Englandsmeistari á þessu tímabili, þó að tímabilið sé aðeins átta umferða gamalt.

Hann segir að menn geti opnað kampavínið strax í Liverpool.
„Liverpool verður meistari. Látið þá fá bikarinn núna. Klárt mál, ég er handviss um að þeir vinni þetta. Þeir eru með átta stiga forystu og eru að spila vel," segir hinn reynslumikli Redknapp.

„Manchester City er ekki að spila nægilega vel og hefur tapað gegn Wolves heima og gegn Norwich. Nýlega vann Aston Villa 5-1 sigur á Norwich."

„City hefur tapað tveimur leikjum en hefur enn ekki spilað leik sem á að teljast erfiður. Ég get ekki séð City lyfta bikarnum þetta tímabilið."

Redknapp telur að Pep Guardiola muni leggja áherslu á Meistaradeildina.

„Ef City vinnur eitthvað á þessu tímabili verður það Meistaradeildin. Liverpool hefur unnið þá keppni en vill vinna Englandsmeistaratitilinn."

Útilokar að United endi í topp fjórum
Liverpool heimsækir Manchester United á sunnudaginn. Ole Gunnar Solskjær og lærisveinar eru í tómu basli.

„Ég get ekki séð United enda í topp fjórum, alls ekki. Ég horfði á leikinn gegn Arsenal og það var ekki leikmaður inni á vellinum sem hefði komist í Man United loðið fyrir nokkrum árum," segir Redknapp.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.