Liverpool leiðir 0-1 gegn Everton í hádegisleik úrvalsdeildarinnar. Leikið er á Goodison Park. Átján mínútur eru liðnar af leiknum. Sadio Mane skoraði snemma leiks eftir undirbúning frá Andy Robertson.
Uppfært: Staðan er 1-1 eftr 20 mínútna leik. Michael Keane jafnaði leikinn fyrir Everton.
Uppfært: Staðan er 1-1 eftr 20 mínútna leik. Michael Keane jafnaði leikinn fyrir Everton.
Jordan Pickford, markvörður Everton, var svo stálheppinn stuttu síðar þegar hann braut á Virgil van Dijk inn á vítateig heimaliðsins. Van Dijk lá eftir og flaggið fór á loft. Rangstaða var niðurstaðan, millimetrar sem björguðu enska landsliðsmarkmanninum frá því að gefa vítaspyrnu.
Tæklingin var ljót og hefði mögulega verðskuldað rautt spjald. Van Dijk þurfti að hætta leik í kjölfarið vegna meiðsla. Joe Gomez kom inn á í stað Hollendingsins.
Jordan Pickford didn’t get booked for this... #EVELIV pic.twitter.com/2eyMbbiaD0
— talkSPORT (@talkSPORT) October 17, 2020
Jordan Pickford is a very lucky man. Terrible tackle.
— SPORTbible (@sportbible) October 17, 2020
Gott að geta brotið hné í rangstöðunni
— Daníel Ólafsson (@danielolafsson) October 17, 2020
11' - We're forced into an early change as Gomez replaces the injured Van Dijk.
— Liverpool FC (@LFC) October 17, 2020
[0-1]#EVELIV
Athugasemdir