17.10.26 - 18:10
Ívan Guðjón Baldursson
Olgeir verður áfram hjá Stjörnunni

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Olgeir og Rúnar Páll störfuðu saman hjá Fylki.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Olgeir Sigurgeirsson var ráðinn ásamt Brynjari Kristmundssyni til að stýra Stjörnunni út deildartímabilið í Bestu deildinni eftir brottrekstur Jóns Þórs Haukssonar fyrr á tímabilinu.

TENGT EFNI
Olgeir sá mikla bætingu: Ekki til staðar í síðasta leik
Tilkynnt hefur verið að Rúnar Páll Sigmundsson mun taka við sem aðalþjálfari Stjörnunnar og er Olgeir vongóður um að starfa sem aðstoðarþjálfari hans.
Olgeir var aðstoðarþjálfari Stjörnunnar þegar Jón Þór var rekinn, ásamt því að vera aðalþjálfari venslaliðsins KFG sem féll úr 2. deild í september.
„Ég og Rúnar erum mjög góðir vinir og spjöllum mjög reglulega saman. Rúnar er frábær þjálfari og frábær manneskja og ég vil alltaf vera umvafinn góðum manneskjum," svaraði Olgeir eftir tap Stjörnunnar gegn Þór í dag, þegar hann var spurður hvort honum hygðist að starfa aftur sem aðstoðarþjálfari Stjörnunnar á næstu leiktíð.
„Ég verð áfram í Stjörnunni. Hvað ég verð að gera? Það á bara eftir að koma í ljós."