Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   sun 17. nóvember 2019 13:45
Brynjar Ingi Erluson
Van Dijk ekki með gegn Eistlandi vegna persónulegra ástæðna
Virgil van Dijk, fyrirliði hollenska landsliðsins, verður ekki með liðinu gegn Eistlandi á þriðjudag vegna persónulegra ástæðna.

Van Dijk var í vörninni er Holland gerði markalaust jafntefli við Norður-Írland í gær en stigið tryggði hollenska liðinu á Evrópumótið á næsta ári.

Hann verður þó fjarri góðu gamni gegn Eistlandi á þriðjudag en hollenska knattspyrnusambandið greinir frá þessu á heimasíðu sinni.

Hann þurfti að yfirgefa æfingasvæði landsliðsins í snatri vegna persónulegra ástæðna.

Van Dijk er lykilmaður í vörn Liverpool en liðið er á toppnum í ensku úrvalsdeildinni með 34 stig.
Athugasemdir
banner
banner