Rekinn frá Sevilla eftir aðeins 67 daga í starfi (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Úrúgvæski þjálfarinn Diego Alonso var látinn taka poka sinn hjá Sevilla eftir 3-0 tap liðsins gegn Getafe í La Liga í gær.
Alonso tók við Sevilla fyrir 67 dögum en hann tók þá við stöðunni af Jose Luis Mendilbar.
Á tíma Alonso hjá Sevilla tókst honum ekki að vinna einn deildarleik og var því látinn fara eftir grátlegt 3-0 tap gegn Getafe.
Þar að auki mistókst liðinu að komast í Evrópudeildina en það hafnaði í 4. sæti síns riðils í Meistaradeild Evrópu og fær því sigursælasta lið Evrópudeildarinnar ekki að vera með í útsláttarkeppninni.
Alonso hefur nú verið látinn fara en ekki er ljóst hver mun taka við keflinu af honum.

?? Comunicado oficial: Diego Alonso deja de ser entrenador del #SevillaFC. #WeareSevilla
— Sevilla Fútbol Club (@SevillaFC) December 16, 2023