Fotbolti.net
18.01.24 - 14:30
Elvar Geir Magnússon

„Gríðarleg vonbrigði“ að Arsenal kallaði Danann til baka

Mika Biereth kom á láni frá Arsenal.

Mika Biereth kom á láni frá Arsenal.

Canon

Mynd: Getty Images

Stuart Kettlewell stjóri skoska úrvalsdeildarliðsins Motherwell segir það gríðarleg vonbrigði að Arsenal hafi kallað Mika Biereth úr láni hjá félaginu.

Þessi tvítugi danski sóknarmaður er U21 landsliðsmaður og stóð sig vel hjá skoska liðinu. Hann lék fimmtán leiki og skoraði sex mörk.
„Mika hefur verið kallaður til baka. Það var erfitt að kyngja þessu og gríðarleg vonbrigði. Þetta kemur okkur á óvart því við ræddum um að Mika yrði hérna út tímabilið. Þannig var staðan í síðustu viku," segir Kettlewell.

Breska ríkisútvarpið segir að Arsenal ætli að lána Biereth aftur en núna til Sheffield Wednesday sem er í fallsæti í ensku Championship-deildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.