Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 18. febrúar 2020 23:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Óttaðist hvað myndi gerast ef Mane andaði djúpt
Sadio Mane.
Sadio Mane.
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, segir að það hafi verið planið hjá Atletico Madrid að reyna að taka Sadio Mane út úr leiknum í kvöld eftir að hann fékk gult spjald.

Atletico vann Liverpool 1-0 í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í Madríd í kvöld.

Mane var tekinn af velli í hálfleik eftir að hafa fengið gult spjald í fyrri hálfleiknum.

„Þetta er hluti af fótbolta þó ég sé ekki hrifinn af því," sagði Klopp. „Planið hjá þeim var að reyna að taka Sadio úr leiknum með öðru gulu spjaldi."

„Ég var hræddur um að andstæðingurinn myndi falla þegar Sadio andaði djúpt. Ég vildi ekki þá stöðu og þess vegna tók ég hann út af," sagði þýski knattspyrnustjórinn.

Seinni leikur Liverpool og Atletico fer fram á Anfield um miðjan mars. Liverpool er ríkjandi Evrópumeistari.


Athugasemdir
banner
banner
banner