Stefán Teitur Þórðarson, miðjumaður ÍA, er þessa dagana til reynslu hjá norska úrvalsdeildarliðunu Sarpsborg.
Stefán Teitur verður tíu daga við æfingar hjá Sarpsborg en hann hefur vakið athygli hjá erlendum félögum undanfarna mánuði.
Fyrir áramót var Stefán Teitur á reynslu hjá Álasund í Noregi.
Hinn 21 árs gamli Stefán Teitur var lykilmaður á miðjunni hjá ÍA á síðasta tímabili.
Stefán Teitur er í U21 landsliði Íslands en í síðasta mánuði spilaði hann fyrstu tvo leiki sína með A-landsliðinu.
Athugasemdir