Sven Mislintat var yfirmaður knattspyrnumála hjá Arsenal en yfirgaf félagið í janúarglugganum eftir að stjórn félagsins neitaði að gefa grænt ljós á leikmannakaup.
Monchi og Marc Overmars voru efstir á lista Arsenal sem arftakar Mislintat en hvorugur þeirra mun ganga til liðs við félagið á næstunni.
Monchi yfirgaf Roma á dögunum en valdi Sevilla framyfir Arsenal. Þá var Overmars næstur á listanum en hann skrifaði undir samning við Ajax í dag sem gildir til sumarsins 2024.
Overmars er í miklu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum Arsenal eftir dvöl sína hjá félaginu sem leikmaður. Hann hefur verið yfirmaður knattspyrnumála hjá Ajax síðan í júní 2012.
📝 Marc Overmars -> 30 juni 2024!
— AFC Ajax (@AFCAjax) March 18, 2019
Athugasemdir