Verður með HK í sumar
Markvörðurinn, Sigurður Hrannar Björnsson hefur verið lánaður til sameiginlegsliðs Hattar og Hugins frá HK.
Sigurður er kominn með leikheimild og lék með sameiginlegu liði Hattar og Hugins í Lengjubikarnum um helgina í 2-1 sigri á Völsungi.
Sigurður er kominn með leikheimild og lék með sameiginlegu liði Hattar og Hugins í Lengjubikarnum um helgina í 2-1 sigri á Völsungi.
Sigurður þekkir vel til á Egilsstöðum því hann lék með Hetti í 2. deildinni sumrin 2015 og 2016.
Í fyrra var hann í leikmannahópi HK sem tryggði sér upp í Pepsi-Max deildina.
Sigurður Hrannar verður aðeins í láni frá HK í Lengjubikarnum og mun svo snúa aftur í Kópavoginn þegar Pepsi-deildin byrjar.
Athugasemdir