18.03.20 - 20:06
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Tveir leikmenn Víkings í sóttkví

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tveir leikmenn Víkings Reykjavíkur eru í sóttkví. Þetta staðfestir Haraldur Haraldson, framkvæmdastjóri félagsins, í samtali við <b><a href="https://www.mbl.is/sport/efstadeild/2020/03/18/tveir_leikmenn_vikings_i_sottkvi/" target="_blank">mbl.is</a></b> nú í kvöld.
„Í dag fóru tveir leikmenn úr meistaraflokki í sóttkví. Annar þeirra er að vinna í Klettaskóla og hinn í frístundaheimili," sagði Haraldur við mbl.is.
„Ég held að fæstir hópar sleppi frá einhverju svona. Þetta eru erfiðar aðstæður en við þurfum að vinna með þetta einhvern veginn, bætti Haraldur við.
Á síðu mbl.is kemur fram að Haraldur muni ásamt öðrum stjórnarmönnum KSÍ funda á morgun um næstu skref sambandsins.

Heimild: MBL