Það voru tveir leikir leiknir í B deild Lengjubikar kvenna í kvöld en báðar viðureignir hófust klukkan 19:00.
Afturelding vann sannfærandi sigur á HK, 4-1, og nældi í sitt sjöunda stig í deildinni eftir þrjá leiki.
Guðrún Elísabet Björgvinsdóttir var allt í öllu hjá Aftureldingu en hún skoraði þrennu í sigrinum.
Í hinum leiknum áttust við Grótta og Augnablik en þar hafði Augnablik betur 2-1 og er með fullt hús stiga á toppnum.
HK 1 - 4 Afturelding
0-1 Guðrún Elísabet Björgvinsdóttir('13)
0-2 Guðrún Elísabet Björgvinsdóttir('36)
0-3 Ragna Guðrún Guðmundsdóttir('72)
1-3 Ragnheiður Kara Hólm Örnudóttir('76)
1-4 Guðrún Elísabet Björgvinsdóttir('78)
Grótta 1 - 2 Augnablik
0-1 Margrét Lea Gísladóttir('68)
0-2 Margrét Lea Gísladóttir('71)
1-2 Eydís Lilja Eysteinsdóttir('89)
Athugasemdir