Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   sun 18. apríl 2021 10:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sjáðu: Leikmenn fóru í röð til að fá mynd með Messi og bikarnum
Mynd: EPA
Barcelona vann í gærkvöldi spænska Konungsbikarinn. Það er ekki svo langt síðan Real Sociedad lyfti bikarnum en það var í leik sem tilheyrði síðasta tímabili þegar keppnin var ekki kláruð. Í bæði skiptin var það Athletic Bilbao sem tapaði úrslitaleiknum.

Barcelona vann leikinn 4-0, Lionel Messi skoraði tvö mörk í leiknum og er nú markahæsti leikmaður í sögu úrslitaleiks keppninnar. Þeir Frenkie de Jong og Antoine Griezmann skoruðu hin tvö mörkin.

Eftir leik fóru leikmenn Barcelona í röð til að geta tekið mynd af sér með Messi með bikarinn fyrir framan þá.

Þetta má sjá hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner