Liverpool og Man Utd berjast um miðjumann - Klopp tekur ekki við Real Madrid - Bayern hefur áhuga á Gordon
   lau 18. apríl 2026 12:10
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Óskar Hrafn um Krumma: Sáu allir hæfileikana sem hann býr yfir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Hann var besti maður vallarins að öllum ólöstuðum," sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, um Hrafn Tómasson sem átti frábæran leik í 5-2 sigri liðsins á Þór í gær.

Hrafn sleit krossband árið 2024 en hann vakti athygli fyrir frammistöðu sína hjá Þrótti í Lengjudeildinni í fyrra þar sem hann var á láni.

Lestu um leikinn: KR 5 -  2 Þór

Hann spilaði sem miðvörður í leiknum í gær en steig oft upp á miðjuna og stjórnaði spilinu.

„Þegar hann kom til baka í fyrra og fór í Þrótti sáu allir hæfileikana sem hann býr yfir. Hann þurfti að bæta varnarleikinn því fótbolti er jú tvíþættur. Þegar þú ert með boltann og án hans. Hann hefur svo sannarlega gert það í vetur, það er meiriháttar gaman að sjá hann stíga upp og vaxa svona hratt og hann er að gera, algjörlega frábær í dag," sagði Óskar Hrafn.
Óskar Hrafn: Að sækja markmann er ozempic leiðin
Slapp
banner