Ætlar að fá Kvaratskhelia til Real Madrid - Ngumoha ekki til sölu - Mourinho vill Bernardo Silva
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
Hödda langaði að fagna eins og Auðun gegn Haukum - „Allir á bekknum brjálaðir að hann hefði skotið"
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
Siggi Lár: Gaman að vera í Laugardalnum
Horfðu á Besta spjallið - Staða mála skoðuð í landsleikjahlénu
Pablo Punyed sáttur: Vona að ég sjálfur geti spilað minna og minna í sumar
Gaui Lýðs um uppganginn á Ásvöllum: Setjum stefnuna á að komast í efstu deild
Nemanja Pjevic: Þegar maður bíður eftir strætó koma þeir allt í einu þrír í einu
banner
   mán 18. maí 2026 23:29
Hafþór Örn Laursen
Davíð Smári: Það lítur ekki vel út fyrir Jóhann
Lengjudeildin
Davíð Smári, þjálfari Njarðvíkur
Davíð Smári, þjálfari Njarðvíkur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Njarðvík tapaði 2-0 gegn HK í 4. umferð Lengjudeildarinnar, en það skyggði töluvert á leikinn á 69. mínútu þegar Jóhann Ægir Arnarsson meiddist illa. Leikurinn var stopp í rúman hálftima á meðan beðið var eftir sjúkrabíl.

Lestu um leikinn: HK 2 -  0 Njarðvík

„Tilfinningar mínar eftir leik eru pínu litaðar af því sem gerðist í leiknum hvað Jóhann varðar. Mér líður illa yfir því að hann lendir í þessu og gríðarlega leiðinlegt fyrir fótboltamann að lenda í svona meiðslum. Við sem lið stöndum á bakvið hann og óskum honum góðs bata.''

„Ef við förum í leikinn þá er ég stoltur af mínu liði. Við vorum klárlega betri aðilinn í fyrri hálfleik og hefðum átt að vera 0-2 yfir ef við hefðum náð að klára tvö dauðafæri. Við slökktum svo á okkur á 10 mínútna kafla í seinni hálfleik þar sem þeir kláruðu leikinn sem er ekki boðlegt.''


Er eitthvað vitað hvað kom nánar fyrir Jóhann?

„Hann fer í öxl-í-öxl baráttu og stígur vitlaust í grasið og það kemur einhver slinkur á hnéð á honum. Þetta lítur ekki vel út en ég vona að svona góðar manneskjur eins og Jóhann sem eru búnir að leggja helling í karma-bankann fái það borgað núna.''

Leandro Fernandes meiddist í seinasta leik gegn Aftureldingu og var því ekki með í dag.

„Hann fékk kitl aftan í lærið og við tökum enga sénsa með hann. Það er ójafnvægi varðandi form í liðinu og um leið og þegar við erum allir komnir á svipaðan stað varðandi það þá hef ég engar áhyggjur af því.

Á 66. mínútu, rúmri mínútu eftir seinna mark HK, fékk Arnleifur Hjörleifsson rautt spjald og var Davíð spurður út í það.

Ég þarf að sjá þetta aftur. Þetta virkaði harður dómur fyrir mér en Helgi Mikael er með það mikil gæði að ég trúi ekki öðru en þetta hafi verið rétt hjá honum en hinsvegar voru brot í leiknum sem mér fannst mjög sérstakt að við fengum ekki.

Njarðvík situr eftir þennan leik í 9. sæti með 4 stig eftir fjórar umferðir. Þeir eiga leik næst við Ægi á heimavelli þann 23. maí.

Slapp
banner
banner