Fotbolti.net
18.05.26 - 23:28
Hafþór Örn Laursen

Gunnar Heiðar: Helvíti langur tími fyrir fótboltaþjálfara

Auglýsing
Gunnar Heiðar, þjálfari HK

Gunnar Heiðar, þjálfari HK

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
HK bar sigur af býtum í leik gegn Njarðvík sem fór 2-0. Hins vegar munu flestir hugsa um meiðsli Jóhann Ægis, leikmann Njarðvíkur, þegar kemur að þessum leik, en hann meiddist illa og var leikurinn stopp í rúman hálftíma eftir á.
Lestu um leikinn: HK 2 - 0 Njarðvík
Hvernig líður þér eftir leikinn?

Þessi leiðindameiðsli setja dökkan svip á þetta eftir að hyggja. Auðvitað veit maður ekki hversu alvarlegt þetta er en þetta leit mjög alvarlegt út. Ég sendi batakveðjur á Jóhann og vonandi nær hann sér sem fyrst aftur.''

„Mjög flott að vinna sterkt Njarðvíkurlið. Fyrri hálfleikur var virkilega lélegur hjá okkur og við vorum eftir á í öllu. En í seinni hálfleik mætti allt annað HK lið og mér fannst við skapa færin en ekki þeir.''


Þetta var í fyrsta sinn sem Gunnar mætir sínum gömlu liðsfélögum í Njarðvík eftir að hann tók við HK fyrir þetta tímabil.

„Ég átti frábæran tíma í Njarðvík. Við vorum hársbreidd frá því að fara upp í Bestu Deild í fyrra og slógum öll félagsmet hjá þessum klúbb.''

„Fyrir mér er þetta gömul saga sem gerist í fyrra og það er helvíti langur tími í lífi fótboltaþjálfara. Nú er maður í HK og við erum að gera virkilega vel og það er mikið hungur í hópnum að gera betur en í fyrra. Þetta er breyttur fótbolti en í fyrra og það tekur smá tíma en mér finnst þetta vera á réttri leið.''


Gunnar og lærisveinar hans í HK sitja eins og er í 2. sæti með 9 stig eftir fjórar umferðir. Þeir eiga næst leik í Breiðholtinu gegn ÍR þann 22. mars.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.