Fotbolti.net
18.05.26 - 21:39
Ívan Guðjón Baldursson

Lengjudeildin: Alvarleg meiðsli skyggðu á sigur HK

Lengjudeildin: Alvarleg meiðsli skyggðu á sigur HK
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lengjudeildin
HK 2 - 0 Njarðvík
1-0 Dominik Radic ('57)
2-0 Aron Kristófer Lárusson ('65)
Rautt spjald: Arnleifur Hjörleifsson, Njarðvík ('66)
Það fóru fjórir leikir fram á sama tíma í Lengjudeildinni í dag en heimaleikur HK gegn Njarðvík tafðist vegna alvarlegra meiðsla.

HK lagði Njarðvík að velli þökk sé tveimur mörkum á átta mínútna kafla í seinni hálfleik, en staðan var jöfn eftir spennandi fyrri hálfleik þar sem bæði lið fengu færi til að skora.

Í síðari hálfleik byrjaði HK betur og náði forystunni á 57. mínútu þegar Tumi Þorvarsson gaf góðan bolta á Dominik Radic sem þrumaði honum í netið. Aron Kristófer Lárusson tvöfaldaði svo forystuna eftir hornspyrnu þegar boltinn barst til hans rétt utan vítateigs. Aron tókst að setja boltann gegnum þvöguna sem hafði myndast í vítateignum og endaði hann í netinu.

Ekki skánaði ástandið fyrir gestina úr Njarðvík þegar Arnleifur Hjörleifsson fékk að líta beint rautt spjald beint eftir seinna markið. Hann reyndi við boltann en fór of hátt með löppina og uppskar rautt spjald.

Skömmu eftir það meiddist Jóhann Ægir Arnarsson svo alvarlega að stöðva þurfti leikinn í hálftíma meðan beðið var eftir sjúkrabíl. Óttast er að hnéskelin hafi farið úr lið.

Þegar leikurinn fór aftur af stað voru heimamenn nálægt því að bæta þriðja markinu við gegn tíu andstæðingum en tókst ekki, svo lokatölur urðu 2-0.

HK deilir öðru sæti deildarinnar með 9 stig eftir 4 umferðir en Njarðvík er aðeins með 4 stig.
Lengjudeildin: Alvarleg meiðsli skyggðu á sigur HK
Canon

Mynd: Kári Snorrason

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.