Fotbolti.net
18.07.13 - 13:30
Magnús Már Einarsson

Arnar Már aftur í Breiðablik (Staðfest)

Arnar Már aftur í Breiðablik (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Arnar Már Björgvinsson hefur gengið aftur til liðs við Breiðablik eftir að hafa verið á láni hjá Víkingi Ólafsvík undanfarna tvo mánuði.

Arnar Már fór til Víkings á láni í maí og spilaði samtals sex leiki með félaginu.
,,Frábærum tíma í Ólafsvík lokiđ! Óska Vikingum nær og fjær góđs gengis!!\" sagði Arnar á Twitter.

Arnar Már hefur verið á mála hjá Breiðabliki síðan árið 2011 en hann skoraði þrjú mörk í tólf leikjum með félaginu í fyrra.

Hann má ekki spila gegn Sturm Graz í Evrópudeildinni í kvöld en Arnar gæti verið með Blikum gegn Þór á sunnudag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.