Fotbolti.net
18.07.13 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Axel Kári í ÍR (Staðfest)

Axel Kári í ÍR (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍR hefur fengið vinstri bakvörðinn Axel Kára Vignisson á láni frá Víkingi R.

Axel Kári er uppalinn ÍR-ingur en hann gekk í raðir Víkings síðastliðinn vetur.
Hann hefur æft með sínum gömlu félögum í Breiðholti undanfarið og nú er ljóst að hann mun leika með liðinu á láni út tímabilið.

Axel hefur komið við sögu í þremur leikjum hjá Víkingi á þessu tímabili en hann á einnig að baki 99 deildar og bikarleiki með ÍR.

100. leikurinn með ÍR gæti komið í kvöld þegar liðið heimsækir Gróttu á Seltjarnarnes.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.