18.07.13 - 19:30
Arnar Daði Arnarsson
Sigurður Egill aftur í Val (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valsmenn hafa kallað Sigurð Egil Lárusson aftur til baka úr láni frá Víking. Frá þessu er greint á Víkingur.net. Sigurður Egill gekk í raðir Vals frá Víking í vetur en fékk fá tækifæri til að byrja með í Pepsi-deildinni en hann var að berjast við meiðsli í vetur.
Sigurður fór því á lán til síns uppeldisfélag og hefur heldur betur slegið í gegn hjá Víking í 1.deildinni. Hann hefur skorað fimm mörk í níu leikjum í 1.deildinni í sumar og verið einn besti leikmaður liðsins.
Þetta er því mikil blóðtaka fyrir Víking en liðið er í harðri baráttu um að tryggja sér sæti í Pepsi-deildinni að ári.
Mikil meiðsli hafa verið í herbúðum Vals upp á síðkastið og þá hefur James Hurst yfirgefið Val og allar líkur eru á því að Björgólfur Takefusa sé búinn að leika sinn síðasta leik fyrir Hlíðarendafélagið.
Magnús Gylfason þjálfari Vals hefur því ákveðið að kalla Sigurð Egil til baka en Magnús sá Sigurð til að mynda skora tvö mörk fyrir Víking í 3-1 sigri á Þrótt á þriðjudaginn.

Heimild: Víkingur.net