Fotbolti.net
18.07.19 - 22:49
Mist Rúnarsdóttir

Júlli: Getum unnið hvaða lið sem er í deildinni

Auglýsing
Júlli: Getum unnið hvaða lið sem er í deildinni
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
<i>„Við vorum virkilega góðar fyrstu 30 mínúturnar. Skorum gott mark og vorum sannfærandi. Ég hafði góða trú á þessu og góða tilfinningu fyrir leiknum. Það var vont að fá þetta jöfnunarmark á sig og hvað þá mark númer tvö hjá þeim, rétt fyrir hálfleik,“</i> sagði Júlíus Ármann Júlíusson, þjálfari Aftureldingar eftir 3-1 tap fyrir FH í kvöld.
Lið Aftureldingar mætti kröftugt til leiks og komst yfir í leiknum með marki frá Darian Powell sem kom til liðsins frá Selfossi á dögunum. Hún virðist ætla að verða góð viðbót við sóknarleik Aftureldingar.

„Það er gríðarlegur fengur í henni. Hún er að koma vel inn í þetta. Við erum með vel spilandi lið. Stelpur sem eru góðar í fótbolta og vilja spila fótbolta þannig að ég er bara bjartsýnn á framhaldið.“

Nú er mótið hálfnað og lið Aftureldingar situr í 4. sæti. Liðinu var spáð í neðri hlutanum fyrir mót og hefur því komið þónokkuð á óvart. Júlli segir liðið í ár eitt það besta sem hann hefur þjálfað hjá Aftureldingu og ætlar sér að enda í efri hluta deildarinnar.

„Við ætlum að halda áfram að ná í stig. Við erum með lið sem getur unnið hvaða lið sem er í þessari deild og höfum trú á verkefninu og trú á hvorri annarri.“

„Okkar markmið er skýrt. Við ætlum að vera fyrir ofan miðbikið.“


Nánar er rætt við Júlla í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.