Eiður Smári: Komumst nokkuð vel frá fyrsta verkefninu
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eiður Smári Guðjohnsen, annar þjálfara FH, var að vonum sáttur eftir -0 sigur í fyrsta leik gegn Fjölni í Pepsi Max-deildinni.
Eiður Smári tók við FH ásamt Loga Ólafssyni af Ólafi Kristjánssyni, sem tók við Esbjerg í Danmörku, fyrr í þessari viku. Eiður Smári er aðstoðarþjálfari íslenska U21 landsliðsins en leikmannaferil hans þekkja allir enda einn besti fótboltamaður Íslandssögunnar.

„Við höfum haft stuttan tíma til að koma með okkar áhersluatriði. Markmiðið í dag var alla vega að halda hreinu og það tókst. Það er auðvitað margt sem hægt er að bæta en við förum bara í þá vinnu," sagði Eiður Smári eftir leikinn.
FH er komið með tíu stig og Eiði líst vel á framhaldið. „Þetta var fyrsta verkefnið okkar og við komumst nokkuð vel frá því."
„Núna fer undirbúningur af stað fyrir næsta leik sem er á miðvikudaginn."
Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.