Fotbolti.net
18.08.19 - 12:03
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu markið: Rúmenska leynivopnið að ganga frá Cardiff

George Puscas er kominn með tvö gegn Cardiff

George Puscas er kominn með tvö gegn Cardiff

Canon

Mynd: Getty Images

George Puscas, leikmaður Reading í ensku B-deildinni, er nafn sem er vert að fylgjast með en hann kom til félagsins frá Inter á dögunum.
Puscas er 23 ára gamall framherji en hann var næst markahæsti leikmaðurinn á Evrópumóti U21 árs landsliða í sumar.

Hann var á mála hjá ítalska félaginu Inter frá 2013 en ákvað að fara til Reading undir lok gluggans og er þegar byrjaður að heilla.

Puscas skoraði gegn Wycombe Wanderers í enska deildabikarnum á dögunum og er kominn með tvö mörk gegn Cardiff City í ensku B-deildinni í dag en staðan er 2-0 fyrir heimamönnum.

Hann skoraði magnað mark þar sem hann hljóp frá eigin vallarhelming áður en hann fíflaði varnarmann Cardiff og skoraði en hægt er að sjá markið hér fyrir neðan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.