Hefur áhyggjur af Casemiro - „Þetta voru panik kaup"

Casemiro.

Mynd: EPA

Casemiro.

Mynd: EPA
Jamie Carragher, fyrrum varnarmaður Liverpool, hefur áhyggjur af Casemiro, miðjumanni Manchester United, eftir fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar.
Casemiro var keyptur til United frá Real Madrid fyrir allt að 70 milljónir punda.
Casemiro hefur verið einn besti leikmaður heims í sinni stöðu í fjölda ára en hann er orðinn 31 árs gamall. Carragher telur að United muni sjá eftir þessum kaupum þó Casemiro hafi verið öflugur á síðasta tímabili.
„Caicedo og Rice eru dæmi um framtíðarhugsun. Þeir kostuðu mikið en félögin munu spara til framtíðar þar sem þau þurfa ekki að kaupa leikmann í þessa stöðu næstu árin," skrifar Carragher í pistli sínum fyrir Telegraph. Arsenal borgaði 105 milljónir punda fyrir Declan Rice og Chelsea borgaði 115 milljónir punda fyrir Moises Caicedo í sumar. Carragher telur það betri kaup en kaupin á Casemiro síðasta sumar, þó að sá brasilíski hafi hjálpað Man Utd að ná Meistaradeildarsæti og að vinna deildabikarinn.
„Ég trúði því aldrei að Casemiro yrði peninganna virði. Hann er leikmaður í heimsklassa en hann er kominn á það stig ferilsins að hann getur aldrei endurborgað upphæðina sem Man Utd borgaði fyrir hann inn á vellinum."
„Þetta voru panik kaup," segir Carragher en hann býst við því að það þurfi að skipta Casemiro út á næstu tveimur árum. Brasilíski miðjumaðurinn átti alls ekki góðan leik gegn Úlfunum í fyrstu umferð deildarinnar síðasta mánudagskvöld. United mætir Tottenham í öðrum leik sínum á morgun.

At over £100M, Fernandez, Rice & Caicedo are all better value signings than Casemiro is at 70M.
— Jamie Carragher (@Carra23) August 18, 2023
He did very well last season, but watching him on Monday would be a worry for Man United with him at 31 with 4 yrs left on his deal.
https://t.co/LgIqM73q36