Alonso og Silva á blaði Chelsea - Wissa til sölu - Delap vill vera áfram
Adam Páls: Nú er farið að taka okkur alvarlega
Hemmi Hreiðars: Það var bara samningsatriði
Siggi Höskulds: Skoruðum löglegt mark
Óskar Hrafn: Meiri taugaspenna að hafa KR áhorfendur bak við sig
Jökull: Það er enginn ánægður í okkar klefa með frammistöðuna
Ólafur Ingi: Einhver narratíva þarna úti sem við erum ekki sammála
Danni Hafsteins: Ég vil spila alla leiki
Lárus Orri: Okkur vantar drápseðli
Sölvi Geir: Hann er búinn að sokka alla sem voru að gagnrýna hann
Amin Cosic hissa: Klobbaði einn og svo annan, bjóst svo við seinna gula þegar ég var rifinn niður
Jói Kalli ósáttur: Engin regla um hvað boltinn þarf að vera lengi í leik eftir að hagnaði er beitt
Þorri Stefán: Ég hef verið kallaður Joe Gomez Fram-liðsins
Rúnar Kristins: Við höfum fengið fyrirspurnir um Magnús
Davíð Helgi: Búinn að halda þessu fagni leyndu
Haraldur Freyr: Of langur tími til þess að 'suffera'
Enginn feluleikur hjá Hadda - „Ef þú ert ekki tilbúinn að leggja þig fram þá spilarðu ekki í KA“
Guðni Eiríks: Það er ekki tilfinningin sem ég fæ
Rúnar Páll: Við erum helvítis klaufar
Fyrsti leikurinn með Þór/KA síðan 2021 - „Þokkalega sanngjarnt"
Gunnar Heiðar: Við erum allir í 'revenge mode'
   mán 18. september 2017 09:00
Hafliði Breiðfjörð
Anna Rakel frétti af landsliðsvalinu á Fótbolta.net
Kvenaboltinn
Anna Rakel á landsliðsæfingu í vikunni.
Anna Rakel á landsliðsæfingu í vikunni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var ótrúlega gaman en kom mér á óvart ef ég á að vera alveg hreinskilin. Ég er búin að stefna að þessu rosalega lengi og þetta var virkilega skemmtilegt," sagði Anna Rakel Pétursdóttir leikmaður Þórs/KA við Fótbolta.net í dag en hún var í fyrsta sinn valin í landsliðshóp Íslands sem mætir Færeyjum í undankeppni HM 2019 á mánudaginn.

„Ég sá þetta bara á netinu," sagði Anna Rakel og hélt áfram. „Liðsfélagar mínir sendu til hamingju á mig og ég hafði ekki hugmynd um hvað þær voru að tala um fyrr en ég kíkti á Fótbolta.net og það var mynd af mér fremst, það var smá sjokk," sagði hún og sagðist hafa stefnt að landsliðinu síðan hún var smákrakki.

Leikur Íslands og Færeyja á ḿanudagskvöldið er fyrsti leikur Íslands í undankeppni Heimsmeistaramótsins 2019.

„Ég er ótrúlega spennt fyrir þessum leik þetta verður skemmtilegt og krefjandi verkefni. Við þurfum að eiga toppleik á móti Færeyjum og það skiptir engu máli hvort það séu Færeyjar eða Þýskaland. Við þurfum alltaf að eiga toppleik." 
Slapp
banner
banner