Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mið 18. september 2019 14:32
Elvar Geir Magnússon
Romero, Tuanzebe og Greenwood byrja hjá Man Utd
Daniel James meiddur
Mason Greenwood.
Mason Greenwood.
Mynd: Getty Images
Ole Gunnar Solskjær hefur þegar opinberað þrjá byrjunarliðsmenn sem verða í byrjunarliðinu gegn Astana í Evrópudeildinni á morgun.

Luke Shaw, Paul Pogba, Anthony Martial og Daniel James verða allir fjarri góðu gamni þegar United fær Rúnar Má Sigurjónsson og félaga í heimsókn.

James var að bætast við meiðslalistann hjá Manchester United en hann fékk högg í leiknum gegn Leicester um síðustu helgi.

Solskjær ætlar að dreifa álaginu á hópnum og munu markvörðurinn Sergio Romero, varnarmaðurinn Axel Tuanzebe og sóknarmaðurinn Mason Greenwood byrja leikinn.

„Sergio mun klárlega spila á morgun, hann þarf að vera klár ef eitthvað kemur fyrir David de Gea svo það er kominn tími til að hann fái spiltíma," segir Solskjær.

Tuanzebe var með Solskjær á fréttamannafundinum og Solskjær staðfesti að varnarmaðurinn muni byrja sinn fyrsta leik síðan hann var á láni hjá Aston Villa.

„Við erum með stóran hóp og Axel fær tækifæri á morgun og svo mun Greenwood klárlega spila. Ungir leikmenn munu fá tækifæri. Greenwood er enn ungur en hefur þroskast mikið og þróast síðan ég kom."

Partizan Belgrad frá Serbíu og AZ Alkmaar frá Hollandi eru einnig í riðlinum.
Athugasemdir
banner
banner
banner