Fotbolti.net
18.09.22 - 17:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Moyes: Fór virkilega í taugarnar á mér

David Moyes

David Moyes

Canon

Mynd: EPA

West Ham tapaði með einu marki gegn engu gegn Everton í dag. Neal Maupay skoraði sitt fyrsta mark fyrir Everton.

Markið kom snemma í síðari hálfleik en West Ham steig loks upp eftir að hafa fengið markið á sig.

„Það fór virkilega í taugarnar á mér. Það sýndi að leikmennirnir áttu meira inni en stigu ekki upp fyrr en eftir markið," sagði Moyes í samtali við Football.London.

Tímabilið hefur farið afar illa af stað hjá West Ham en þetta var fimmta tapið þeirra í sjö fyrstu leikjunum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.