Fotbolti.net
18.09.26 - 18:12
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Haddi: Það var ég sem sagði tökum Eið Smára

Haddi og Eiður Smári Guðjohnsen.

Haddi og Eiður Smári Guðjohnsen.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í síðasta mánuði var Eiður Smári Guðjohnsen ráðinn til KA og kom inn í þjálfarateymi liðsins. Hann kom inn sem aðalþjálfari og vinna hann og Hallgrímur Jónasson hlutina saman.

Haddi, eins og Hallgrímur er oft kallaður, hefur stýrt KA frá því haustið 2022.

Hann ræddi við Fótbolta.net í tilefni af nágrannaslagnum gegn Þór og var í lok viðtals spurður út í hvað hefði breyst í hans starfi eftir komu Eiðs til KA.
„Æðislegt að við höfum fengið þennan leik á okkar heimavelli"
TENGT EFNI

„Æðislegt að við höfum fengið þennan leik á okkar heimavelli"

„Það sem hefur breyst er að við erum tveir aðalþjálfarar, ræðum hlutina mikið og tökum ákvarðanir saman. Áður en hann kom var ég aðalþjálfari með aðstoðarþjálfara (Atla Svein Þórarinsson) með mér og það samstarf gekk mjög vel. En mér fannst við þurfa smá innspýtingu og þegar Eiður kemur þá erum við saman aðalþjálfarar - ég er þá ekki einráður með lokaniðurstöðuna. En sem betur fer hefur gengið ótrúlega vel, við sjáum fótbolta á svipaðan hátt, hann hefur komið mjög ferskur inn og á góðan hátt. Maður veit aldrei nákvæmlega hvernig svona mun ganga, en ég er mjög ánægður með hann, við vinnum vel saman og hann var ánægður að koma inn og sá hversu faglega við vorum að gera hlutina. Við vonuðumst til þess að hann kæmi með smá innspýtingu, stundum þarf að bæta nokkrum prósentum við og það er klárt mál að það hefur gerst."

„Frammistöðurnar hafa verið fínar en það er ekki alveg nóg, við þurfum að fá fleiri stig og það er það sem við ætlum að gera."


Fannst þér þú þurfa að kyngja ákveðnu stolti með því að fá inn annan mann með þér sem aðalþjálfara?

„Nei. Ég hef alltaf verið þannig, alinn upp þannig og var þannig sem leikmaður, að ég hef reynt að læra af öllum í kringum mig og reynt að bæta mig. Ef þú ert það hrokafullur (e. arrogant) þjálfari rétt um fertugt að þú haldir að þú vitir og kunnir allt, þá held ég að þú sért á röngum stað. Það hefði örugglega verið mun auðveldara fyrir mig að fá inn einhvern annan þjálfara sem væri minna nafn, en það var ég sem sagði tökum Eið Smára. Þetta er stærsta nafnið í íslenskri fótboltasögu. Ég þekkti hann ágætlega eftir okkar tíma í landsliðinu og ég vissi hvaða mann hann hefur að geyma. Ég taldi hann vera það sem væri best fyrir KA."

„Ég hugsaði hvort ég gæti komið honum inn í hlutina og hvort ég gæti lært af honum. Þetta snerist alls ekkert um að kyngja einhverju stolti. Það hefur enginn þjálfari á Íslandi verið lengur með liðið sitt en ég og ég er stoltur af því. Ég er stoltur af því að hafa unnið titil með KA og gert vel í Evrópu. Ég er ekki það hrokafullur að ég haldi að hlutirnir gangi alltaf fullkomlega - þó að ég telji mig mjög hæfan í mínu starfi. Þetta var best fyrir KA og þess vegna vildi ég gera þetta. Stjórnin var á sömu línu og þetta var mjög farsæl lausn."

„Mitt hlutverk hefur breyst mjög lítið. Ég vinn áfram sömu vinnu og nú er bara kominn annar heili til að taka stóru ákvarðanirnar með mér. Ég lít bara jákvætt á það. Ég sé á hópnum að það kom innspýting, menn urðu jákvæðari og það er gaman. Það komu einhverjar nýjar æfingar og ný rödd. Ég er búinn að vera með KA í mörg ár og þegar hlutirnir ganga ekki alveg upp þá þarftu stundum nýja rödd og ég er sannfærður um að þetta var mjög góð niðurstöðu,"
segir Haddi.
Taka stórar ákvarðanir saman.

Taka stórar ákvarðanir saman.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Báðir aðalþjálfarar.

Báðir aðalþjálfarar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þetta er stærsta nafnið í íslenskri fótboltasögu

Þetta er stærsta nafnið í íslenskri fótboltasögu

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég er ekki það hrokafullur að ég haldi að hlutirnir gangi alltaf fullkomlega - þó að ég telji mig mjög hæfan í mínu starfi

Ég er ekki það hrokafullur að ég haldi að hlutirnir gangi alltaf fullkomlega - þó að ég telji mig mjög hæfan í mínu starfi

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.