Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   fim 18. október 2018 17:29
Elvar Geir Magnússon
Jón Sveinsson nýr þjálfari Fram (Staðfest)
Jón stýrir Fram í Inkasso-deildinni á næsta tímabili.
Jón stýrir Fram í Inkasso-deildinni á næsta tímabili.
Mynd: Fram
Jón Þórir Sveinsson hefur verið ráðinn þjálfari Fram í Inkasso-deildinni. Samningurinn er til þriggja ára.

Jón er einn leikjahæsti leikmaður í sögu Fram með 312 leiki fyrir meistaraflokk félagsins. Jón lék sinn fyrsta leik fyrir Fram árið 1983 og þann síðasta árið 1999. Hann varð þrisvar sinnum Íslandsmeistari og þrisvar sinnum bikarmeistari með félaginu á 9. áratugnum.

Jón lék einnig um skeið með FH og Þrótti og á að baki leiki með öllum yngri landsliðum Íslands.

Jón hefur mikla reynslu sem þjálfari, bæði sem þjálfari yngri flokka og sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks. Hann hóf þjálfaraferilinn sem þjálfari 2. flokks Fram árið 2001 og var aðstoðarþjálfari Kristins R. Jónssonar með meistaraflokk FRAM árið 2002.

Jón var einnig aðstoðarþjálfari Þorvaldar Örlygssonar hjá Fram árið 2009. Jón þjálfaði um árabil hjá Fylki, lengst af sem þjálfari 2. flokks og gegndi stöðu aðstoðarþjálfara meistaraflokks. Haustið 2017 kom Jón aftur til starfa hjá Fram og hefur hann þjálfað 3. flokk karla hjá félaginu síðasta árið.

„Það er stefna knattspyrnudeildar FRAM að halda áfram að byggja á ungum og efnilegum leikmönnum félagsins sem fá tækifæri til að byggja sig upp, vaxa, dafna og þroska sinn leik á sama tíma og liðið verður styrkt með leikmönnum sem falla að hugmyndafræði félagsins. Markmiðið er að sjálfsögðu að FRAM verði aftur í hópi hinna bestu liða í efstu deild á nýjum og glæsilegum heimavelli félagsins í Úlfarsárdal. Jón Sveinsson mun gegna lykilhlutverki í þessu starfi á komandi árum og knattspyrnudeild FRAM bindur miklar vonir við störf Jóns fyrir félagið," segir á heimasíðu Fram.

Fram hafnaði í 9. sæti Inkasso-deildarinnar í sumar en Pedro Hipolito lét af störfum sem þjálfari eftir tímabilið og tók við Pepsi-deildarliði ÍBV.

Hér má sjá viðtal við Jón Sveinsson:

Athugasemdir
banner
banner