Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 18. október 2020 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ayew var ekki með í dag vegna Covid
Mynd: Getty Images
Jordan Ayew, framherji Crystal Palace, var ekki í leikmannahópinum í jafnteflinu gegn Brighton í enska boltanum í dag.

Ayew hafði spilað alla leiki Palace hingað til en á síðustu leiktíð skoraði hann níu mörk í 37 úrvalsdeildarleikjum.

Ayew er mikilvægur partur í liði Roy Hodgson en hann staðfesti í dag að hann hafi verið fjarverandi vegna Covid-19.

„Því miður hef ég verið greindur með Covid-19 og er í sóttkví. Sem betur fer er ég einkennalaus og mér líður vel. Ég mun styðja við strákana úr stofunni," segir í skilaboðum frá Ayew á Twitter.

Ayew missir því af næsta leik liðsins gegn Fulham. Næsti leikur þar á eftir er gegn Wolves 30. október.
Athugasemdir
banner
banner
banner