Fotbolti.net
18.10.20 - 14:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Byrjunarlið Tottenham og West Ham: Bale á bekknum

Gareth Bale.

Gareth Bale.

Canon

Mynd: Getty Images

Það er Lundúnaslagur í ensku úrvalsdeildinni klukkan 15:30 þegar Tottenham tekur á móti West Ham.
Gareth Bale byrjar á bekknum hjá Tottenham. Hann er að stíga upp úr meiðslum. Bale er í láni hjá Tottenham frá Real Madrid.

Harry Kane og Son Heung-min byrja ásamt Hollendingnum Steven Bergwijn, sem kemur inn í byrjunarliðið fyrir Erik Lamela. Toby Alderweireld kemur einnig inn í byrjunarliðið frá 6-1 sigrinum á Manchester United.

West Ham vann 3-0 sigur á Leicester fyrir landsleikjahlé. David Moyes byrjar með nákvæmlega sama lið og í þeim leik.

Byrjunarlið Tottenham: Lloris, Aurier, Alderweireld, Sanchez, Reguilon, Ndombele, Sissoko, Hojbjerg, Bergwijn, Kane, Son.
(Varamenn: Hart, Doherty, Davies, Winks, Moura, Vinicius, Bale)

Byrjunarlið West Ham: Fabianski, Ogbonna, Balbuena, Cresswell, Coufal, Rice, Soucek, Masuaku, Bowen, Antonio, Fornals.
(Varamenn: Randolph, Fredericks, Diop, Noble, Snodgrass, Lanzini, Yarmolenko)

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Man City3+59
2Arsenal3+59
3Hull City3+37
4Chelsea3+16
5Brentford3+35
6Liverpool3+25
7Newcastle3+25
8Everton3+25
9Leeds3+15
10Brighton3+34
11Man Utd3+14
12Sunderland304
13Crystal Palace3-43
14Ipswich Town3-43
15Bournemouth3-12
16Nott. Forest3-12
17Aston Villa3-51
18Tottenham3-51
19Fulham3-30
20Coventry3-50
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.