Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 18. nóvember 2019 17:01
Ívan Guðjón Baldursson
Sædís Rún valdi Stjörnuna (Staðfest)
Mynd: Stjarnan FC á Facebook
Stjarnan var að fá efnilega landsliðsstelpu til liðs við sig rétt í þessu og kemur hún frá Víkingi Ólafsvík.

Hún heitir Sædís Rún Heiðarsdóttir og á níu leiki að baki með U16 og U17 liðum Íslands. Sædís er fædd 2004.

„Það er mikið fagnaðarefni að Sædís Rún, sem er ein af efnilegri knattspyrnustúlkum landsins, hafið valið að ganga til liðs við okkur í Stjörnunni," segir meðal annars í Facebook færslu hjá Stjörnunni.

Sædís hefur ekki komið við sögu í keppnisleik með meistaraflokki en á fjóra leiki að baki í deildabikar.
Athugasemdir
banner
banner
banner