Jón Guðni: Þá finnst mér rangt að vera vorkenna sjálfum mér
Auglýsing

Jón Guðni Fjóluson.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Jón Guðni í viðtali eftir undirskrift.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Átt langan feril í atvinnumennsku en snýr núna aftur heim.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Jón Guðni Fjóluson.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
„Þetta er bara frábær tilfinning og virkilega spennandi," segir Jón Guðni Fjóluson, nýr leikmaður Víkings, í samtali við Fótbolta.net.

TENGT EFNI
Jón Guðni byrjaður að æfa eftir mjög erfið meiðsli
Hann kvaddi sænska félagið Hammarby í síðasta mánuði en miðvörðurinn spilaði aðeins 33 leiki á tæpum þremur árum sínum hjá félaginu. Hann á átján A-landsleiki á ferilskrá sinni. Hann lék með Fram hér á landi til 2011 þegar hann fór í atvinnumennsku og spilaði í Belgíu, Svíþjóð, Rússlandi og Noregi.
Jón Guðni hefur verið orðaður við Víking í góðan tíma en hann segir að skiptin hafi ekki verið lengi að gerast.
„Þetta er ekki búið að vera lengi að gerast, en við höfum haldið sambandi í lengri tíma. Við höfum tékkað stöðuna á hvor öðrum, ég og Kári (Árnason). Þegar þetta var 'on' núna, þá gerðist þetta fljótt," segir Jón Guðni en núna var rétti tímapunkturinn til að koma heim. Var það alltaf Víkingur eða voru önnur félög inn í myndinni?
„Ég er búinn að heyra í Kára og halda sambandi við hann í lengri tíma. Það er heillandi, það sem Víkingur hefur verið að gera síðustu ár og það sem þeir ætla sér að gera. Það var virkilega spennandi og hljómaði mjög vel fyrir mér."
Jón Guðni viðurkennir að önnur félög hafi haft áhuga en Víkingur var mest spennandi. „Titlarnir tala sínu máli og á næsta ári er Evrópukeppni ofan á. Það er mjög skemmtileg áskorun."
Ég er á mjög góðum stað
Jón Guðni samdi til tveggja ára við Víking. Hann er 34 ára og hefur verið á meiðslalistanum síðustu tvö ár. Hann sleit krossband undir lok árs 2021 og fór í kjölfarið í aðgerð, en fékk bakslag í endurhæfingunni vegna þrálátrar sýkingar í fæti.
Hvernig er staðan á honum núna?
„Þetta eru ein meiðsli sem hafa sett frekar stórt strik í reikninginn. Ég hef farið í tvær aðgerðir á hné. Ég komst aldrei aftur út á völlinn eftir fyrstu aðgerð vegna sýkingar sem kom. Það gerði það að verkum að þetta var ekki að gróa eins og það átti að gera. Það hefur gengið virkilega vel eftir seinni aðgerðina og það hefur verið stígandi í þessu allt árið. Maður er spenntur að komast aftur út á völl," sagði Jón Guðni.
„Ég er á mjög góðum stað og á réttri leið. Ég er farinn að æfa út á velli með bolta. Ég hef ekki verið að æfa með liðinu en það er svolítið síðan Hammarby fór í frí. Ég er á góðum stað og það er stígandi í þessu. Þetta lítur allt vel út. Fyrir utan hnéð, þá er líkaminn bara í flottu standi."
„Auðvitað er þetta pirrandi en ég hef sloppið við þetta nánast allan minn feril. Þetta er pirrandi og erfitt. Maður er gjörsamlega kominn með ógeð af líkamsræktarsölum, hjólum og öllu sem tengist þessu. En á sama tíma á ég dóttur sem er með grófa sjónskerðingu og heyrnarskerðingu. Þá finnst mér rangt af mér að vera vorkenna sjálfum mér að geta ekki sparkað í bolta."
Setur það hlutina í ákveðið samhengi?
„Það gerir það. Ekki bara núna, heldur síðan hún kom í heiminn. Þetta hefur verið erfiður og krefjandi tími, en á sama tími lærdómsríkur. Vonandi fer maður að búinn með hann núna."
Hægt er að sjá allt viðtalið í spilaranum hér að ofan. Varnarmaðurinn öflugi er stoltur af löngum atvinnumannaferli sínum og er tilbúinn í næsta kafla hér heima.