Michael Beale tekur við Sunderland (Staðfest)

Michael Beale.

Mynd: Getty Images

Michael Beale.

Mynd: Getty Images
Sunderland hefur staðfest ráðningu á Michael Beale en hann er tekinn við sem knattspyrnustjóri liðsins.
Will Still, hinn áhugaverði stjóri Reims í Frakklandi, var einnig orðaður við starfið en það var Beale sem var ráðinn á endanum.

Beale er 43 ára gamall og stýrði síðast Rangers í skoska boltanum, en þar áður var hann þjálfari QPR í Championship deildinni.
Hann hóf þjálfaraferilinn í yngriflokkastarfi Chelsea og skipti svo yfir í akademíuna hjá Liverpool þar sem hann starfaði í rúman áratug. Í kjölfarið af því var hann ráðinn sem aðstoðarþjálfari Rogério Ceni hjá Sao Paulo í Brasilíu og svo sem aðstoðarþjálfari Steven Gerrard hjá Rangers og Aston Villa.
Hann fær spennandi verkefni hjá Sunderland sem er í umspilsbaráttu í Championship deildinni, með 33 stig eftir 22 umferðir.