Mikill liðsstyrkur til Víkinga - Jón Guðni, Valdimar og Pálmi Rafn sömdu (Staðfest)

Valdimar, Pálmi Rafn og Jón Guðni í Víkinni í dag.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Jón Guðni Fjóluson á fréttamannafundinum í gær.

Víkingur boðaði til fréttamannafundar nú í hádeginu þar sem tilkynnt var um komu þriggja nýrra leikmanna sem allir koma frá erlendum liðum. Jón Guðni Fjóluson, Valdimar Þór Ingimundarson og Pálmi Rafn Aðalbjörnsson sömdu við félagið.
Jón Guðni Fjóluson samdi til tveggja ára. Hann er 34 ára og hefur verið á meiðslalistanum síðustu tvö ár. Hann sleit krossband undir lok árs 2021 og fór í kjölfarið í aðgerð, en fékk bakslag í endurhæfingunni vegna þrálátrar sýkingar í fæti. Hann kvaddi sænska félagið Hammarby í síðasta mánuði en miðvörðurinn spilaði aðeins 33 leiki á tæpum þremur árum sínum hjá félaginu.
Hann á átján A-landsleiki á ferilskrá sinni. Hann lék með Fram hér á landi til 2011 þegar hann fór í atvinnumennsku og spilaði í Belgíu, Svíþjóð, Rússlandi og Noregi.
Valdimar Þór Ingimundarson samdi til fjögura ára. Hann er 24 ára sóknarleikmaður sem hefur verið hjá norska liðinu Sogndal síðan í janúar á síðasta ári. Hann skoraði sjö mörk og átti sex stoðsendingar í 27 leikjum í norsku B-deildinni á liðnu tímabili.
Hann sló í gegn með Fylki í efstu deild sumarið 2020 og var í kjölfarið seldur til Strömsgodset. Hann hefur lekið tvo A-landsleiki, vináttulandsleiki gegn Sádi-Arabíu og Úganda sem fram fóru í fyrra.
Pálmi Rafn Arinbjörnsson er markvörður sem samdi til fjögurra ára og er fenginn í stað Þórðar Ingasonar varamarkmanns sem langði skóna á hilluna í síðustu viku. Hann kemur frá Wolves á Englandi þar sem hann hefur spilað með varaliði félagsins: U21 liðinu. Hann var keyptur til Wolves frá Njarðvík eftir tímabilið 2019 og hefur verið hjá Wolves síðan.
Hann hefur varið mark U21 liðsins tvisvar í deildinni í vetur en hefur verið fjarri góðu gamni að undanförnu vegna meiðsla. Pálmi á að baki einn keppnisleik í meistaraflokki. Hann varði mark Skeid í norsku B-deildinni í lok tímabilsins 2022 en hann var þar á láni frá Wolves. Hann á að baki átján leiki fyrir yngri landsliðin.

Pálmi Rafn Arinbjörnsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð