Raggi Sig er nýr aðstoðarþjálfari HK (Staðfest)

Mynd: HK

Mynd: HK
Ragnar Sigurðsson er nýr aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá HK, en þetta var tilkynnt í dag.
Ragnar var aðstoðarmaður Jóns Þóris Sveinssonar hjá Fram á síðasta tímabili og tók síðan við liðinu í lok júlí eftir að Jón Þórir var látinn fara frá félaginu.
Hann náði að bjarga liðinu frá falli en það hafnaði í 10. sæti, tveimur stigum fyrir ofan ÍBV.
Ragnar yfirgaf Fram eftir tímabilið en hann er nú kominn með annað starf. Hann hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Ómars Inga Guðmundssonar hjá HK.
Öflug ráðning hjá HK-ingum sem gerðu ágætis hluti í Bestu deildinni í sumar.
HK, sem var nýliði á nýafstöðnu tímabili, hafnaði í 9. sæti með 27 stig og verður því áfram í deild þeirra bestu.