fim 19. janúar 2023 20:44
Brynjar Ingi Erluson
Reykjavíkurmótið: Framarar í stuði á móti Fjölni
Albert Hafsteinsson skoraði tvö fyrir Fram
Albert Hafsteinsson skoraði tvö fyrir Fram
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fram 5 - 1 Fjölnir
1-0 Albert Hafsteinsson ('3 )
2-0 Guðmundur Magnússon ('19 )
3-0 Albert Hafsteinsson ('46 )
3-1 Lúkas Logi Heimisson ('52 )
4-1 Aron Snær Ingason ('69 )
5-1 Breki Baldursson ('76 )

Framarar unnu annan leik sinn í Reykjavíkurmótinu er liðið gjörsigraði Fjölni, 5-1, á Framvellinum í dag.

Albert Hafsteinsson og Guðmundur Magnússon gerðu mörk Framara í fyrri hálfleik og þá bætti Albert strax í byrjun síðari.

Lúkas Logi Heimisson minnkaði muninn á 52. mínútu en Framarar bættu í eftir það og gerðu tvö mörk til viðbótar í gegnum Aron Snæ Ingason og Breka Baldursson.

Framarar eru í efsta sæti B-riðils með 6 stig eftir tvo leiki.
Athugasemdir
banner
banner
banner