Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
banner
   mið 19. febrúar 2020 10:26
Magnús Már Einarsson
Fufura í Reyni S. (Staðfest)
Mynd: Reynir Sandgerði
Reynir Sandgerði hefur fengið framherjann Elton Renato Livramento Barros í sínar raðir fyrir átökin í 3. deildinni í sumar.

Elton Barros, eða Fufura eins og hann er kallaður, er 28 ára gamall framherji frá Grænhöfðaeyjum

Hann hefur einnig leikið með Haukum og Keflavík hér á landi þar sem hann hefur skorað 31 mark í 85 leikjum í 1. deildinni og bikarnum.

Í fyrrasumar skoraði Fufura eitt mark í tólf leikjum með Keflavík í 1. deildinni.

Í vetur var Fufura á reynslu hjá Njarðvík en hann spilaði meðal annars með liðinu í Fótbolta.net mótinu. Fufura hefur hins vegar verið til skoðunar hjá Reyni að undanförnu og hann hefur nú samið við félagið.

„Stjórn ksd. Reynis fagnar liðsaukanum og hlakkar til samstarfsins," segir á Facebook síðu Reynis.

Reynir endaði í 4. sæti í 3. deildinni á síðasta tímabili en liðið mætir ÍR í fyrsta leik sínum í Lengjubikarnum næstkomandi föstudagskvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner