Knattspyrnudeild Vestra hefur samið við miðvörðinn Ivo Öjhage út leiktímabilið.
Ivo er 26. ára gamall, stór og stæðilegur Svíi, sem kemur til liðsins frá Levanger í Noregi.
„Eins og áður sagði að þá er Ivo miðvörður að upplagi, en á ferlinum hefur hann einnig spilað í vinstri bakvarðar stöðunni," segir á heimasíðu Vestra.
„Við óskum Ivo velkominn til Vestra og munum við birta bráðlega stutt viðtal sem við tókum við hann við undirritun."

Vestri komst upp úr 2. deildinni í fyrra og leikur því í 1. deild á komandi tímabili.
Glugginn hjá Vestra:
Komnir:
Nacho Gil frá Þór
Sergine Modou Fall frá Óman
Vladimir Tufegdzic frá Grindavík
Ivo Öjhage frá Levanger
Farnir:
Aaron Spear í Kórdrengi
Gunnar Jónas Hauksson í Gróttu (var á láni)
Hákon Ingi Einarsson í Kórdrengi
Josh Signey til Bandaríkjana
Páll Sindri Einarsson í Kórdrengi
Þórður Gunnar Hafþórsson í Fylki
Athugasemdir