Alfons Sampsted skrifaði nýlega undir hjá norska félaginu Bodö/Glimt eftir veru hjá Norrköping í Svíþjóð.
Alfons lék með Breiðablik á Íslandi en lék eitt sumarið með Þór á láni. Alfons fór yfir ferilinn sinn í samtali við Fótbolta.net í desember en í dag sýnir hann á sér hina hliðina.
Sjá einnig:
Alfons Sampsted: Líður eins og töluvert heilsteyptari leikmanni
Alfons lék með Breiðablik á Íslandi en lék eitt sumarið með Þór á láni. Alfons fór yfir ferilinn sinn í samtali við Fótbolta.net í desember en í dag sýnir hann á sér hina hliðina.
Sjá einnig:
Alfons Sampsted: Líður eins og töluvert heilsteyptari leikmanni
Fullt nafn: Alfons Sampsted
Gælunafn: Fonsi
Aldur: 21 árs
Hjúskaparstaða: Einhleypur
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki: Fyrsti leikurinn kom árið 2014
Uppáhalds drykkur: Vatn eða te
Uppáhalds matsölustaður: Jolla í Norrköping
Hvernig bíl áttu: Á ekki bíl, en á hins vegar rafmagnshlaupahjól.
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Er fastur í Formúla 1 þáttunum núna
Uppáhalds tónlistarmaður: Gummi Tóta
Fyndnasti Íslendingurinn: Föstudagar milli 4 og 6 er heilagur tími, FM95blö
Hvað viltu í bragðarefinn þinn: Bláber, daim og síðan eitthvað nýtt
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: Når flyttet du inn i leiligheten?
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: KA væri einn af mínum seinustu valkostum, eitt sinn Þórsari ávallt Þórsari
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Jack Grealish var góður þegar ég dekkaði hann
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Arnar og Eiður eru frábærir með U21 Landsliðið
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Arnór Gauti, gæinn hættir ekki að hlaupa
Sætasti sigurinn: Dettur margir í hug, en það var eitthvað extra sætt þegar við unnum Stjörnuna 1-0 í úrslitaleik Íslandsmótsins innanhúss í 4. flokki hahaha.
Mestu vonbrigðin: Að ná ekki að halda okkur uppi með Landskrona.
Uppáhalds lið í enska: Chelsea
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr íslensku liði í þitt lið: Brynjólfur, fellow panda úr blikunum.
Efnilegasti knattspyrnumaður/kona landsins: Það væri hægt að nefna svo marga/r en Ísak Bergmann og Áslaug Munda hafa heillað mig
Fallegasti knattspyrnumaðurinn/konan á Íslandi: Ég ætla að gefa uppáhalds Pepsi parinu mínu þetta, Alexander Helgi og Sólveig
Besti knattspyrnumaðurinn frá upphafi: Íslenski? Eiður Smári, annars Messi
Hver er mesti höstlerinn í liðinu: Erfitt að gera upp á milli, samansafn af atvinnu höstlerum hérna í Noregi
Uppáhalds staður á Íslandi: Heima í Kóp
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Arnór Gauti, leikmaður Fylkis, sagði frá þessu á sínum tíma, en við gerðum veðmál að ef að ég myndi skora í næsta leik, sem var með U21 gegn Georgíu, þá myndi hann tattooa nafnið mitt á sig. En til að gera langa sögu stutta þá átti hann þessa dýrindis sendingu á fjær stöngina þar sem ég var mættur og skoraði.
Hvað er það síðasta sem þú gerir áður en þú ferð að sofa: Horfi á einn formúla 1 þátt
Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum: Já, er ekki með einhverja eina íþrótt sem ég fylgist með, hef bara gaman að því að horfa á íþróttir yfir höfuð.
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Hef alltaf verið í Nike, en er að prófa að skipta yfir í PUMA núna.
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: Skrift, er með óskiljanlega handskrift.
Vandræðalegasta augnablik: Eina sem mér dettur í hug núna er þegar ég gleymdi að fara í keppnissokkana áður en ég gekk inn á völlinn, dómarinn rak mig inn í klefa að græja þetta.
Hvaða þrjá leikmenn tækir þú með þér á eyðieyju: Guðjón Pétur Lýðsson, gæinn kann að byggja allt sem byggja þarf. Arnór Sig, hann er 100% með einhver Rússatengsl til að koma okkur burt og Willum til að halda mönnum á jörðinni.
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Ég veit ekki, hata tortillur eða eitthvað
Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Gummi Tóta, vissi að hann var mjög góður i fótbolta, en hafði ekki hugmynd um að hann væri jafngóður tónlistamaður.
Hverju laugstu síðast: Sagði mömmu að ég hefði nóg að gera í þessari Semi-sóttkví sem maður er í núna. Hef bókstaflega ekkert að gera.
Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: Hita upp
Nú er tími Covid-19 hvernig er “venjulegur” dagur: Dagarnir eru skrítnir núna, það eru engar skipulagðar æfingar, hópnum var líka skipt upp í 4ra manna hópa, ég má aðeins æfa/chilla með mínum hópi. ég var líka að flytja í nýja íbúð og er ekki enn kominn með internet, þannig mikilvægur partur af deginum er að fara í lobbyið á hótelinu við hliðina á og downloada nokkrum þáttum á netflix. Ekki beint spennandi tímar.
Athugasemdir