Fotbolti.net
19.04.22 - 20:29
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Hólmar Örn: Klikkaði á því að láta hann fá bandið

Auglýsing
Hólmar Örn Eyjólfsson.

Hólmar Örn Eyjólfsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Það var gríðarlega sætt að klára þetta með þremur stigum," sagði Hólmar Örn Eyjólfsson, varnarmaður Vals, eftir sigur gegn ÍBV í fyrstu umferð Bestu deildarinnar.
Hólmar, sem er kominn heim eftir langan feril í atvinnumennsku, var í kvöld að spila sinn fyrsta keppnisleik á Íslandi í fimmtán ár.

Staðan var 1-1 í hálfleik, en Valur náði að koma inn sigurmarkinu á 81. mínútu.

„Þetta einkenndist af mikilli baráttu sem er eðlilegt í fyrsta leik þegar það er mikil spenna í mönnum. Það var hrikalega sætt að klára þetta."

Hólmar var með fyrirliðabandið í dag. Var það einhver klásúla þegar hann gekk í raðir Vals?

„Nei, alls ekki," sagði Hólmar og glotti. „Haukur (Páll Sigurðsson) er fyrirliði og ég klikkaði á því að láta hann fá bandið þegar hann kom inn á."

„Það er Keflavík á sunnudaginn. Það gæti orðið fætingur og við erum búnir að sýna að við getum tekið þátt í því."

Hægt er að sjá allt viðtalið í spilaranum hér fyrir ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.