Fotbolti.net
19.05.22 - 22:21
Jón Már Ferro

Halldór Kristján: Engin breyting á leikplani eða neitt svoleiðis

Auglýsing
Halldór Kristján: Engin breyting á leikplani eða neitt svoleiðis
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin

„Það er svo sem engin sérstök ástæða fyrir því. Þetta er eitthvað sem hann ákvað, bítur alltaf eitthvað svona í sig," sagði Halldór Kristján aðstoðarþjálfari Gróttu eftir sigur þeirra á HK í 3.umferð Lengjudeildarinnar.

Við vorum nálægt því að vera gera vel í fyrri hálfleik, það var alltaf svona aðeins sem vantaði upp á. Við komum út úr hálfleiknum, það var í rauninni ekkert mikið sem breytist, þó svo það líti þannig út. Það eru í rauninni bara aðeins nokkrar aðeins betur heppnaðar sendingar. Engin breyting á leikplani eða neitt svoleiðis," sagði Halldór um hvað hafi valdið sigrinum. 

Við vorum að búa okkur til ágætis stöður til þess að spila boltanum. Við vorum svolítið að flýta okkur í fyrri hálfleik. Það var aðallega það," sagði Halldór um breytinguna frá fyrri og seinni hálfleik.

Að lokum bætti Halldór við að þeir ætli klárlega að vinna HK í  bikarleiknum á þriðjudaginn, en sagði jafnframt hve erfitt það sé að fara í Kórinn. 

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.