Fotbolti.net
19.05.23 - 22:30
Ívan Guðjón Baldursson

PSG framlengir við fyrirliðann til 2028 (Staðfest)

PSG framlengir við fyrirliðann til 2028 (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Brasilíski varnarmaðurinn Marquinhos er búinn að skrifa undir samning við franska stórveldið Paris Saint-Germain sem gildir til sumarsins 2028.

Marquinhos er fjölhæfur leikmaður sem er miðvörður að upplagi en getur einnig spilað á miðjunni og í hægri bakverði.

Hann er fyrirliði PSG og hefur spilað yfir 400 leiki á tíu árum hjá félaginu.

Marquinhos er 29 ára gamall og með 76 landsleiki að baki fyrir Brasilíu.

Hann hefur unnið allt mögulegt með PSG nema Evrópukeppni.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.