Almarr Ormarsson gekk í raðir Vals fyrir tímabilið. Hann var í byrjunarliðinu í annað sinn í sumar þegar Valur lagði Breiðablik á miðvikudag.
Birkir Heimisson, sem einnig var í byrjunarliði Vals, var til viðtals í gær á Fótbolti.net og var hann spurður út í Almar.
Birkir Heimisson, sem einnig var í byrjunarliði Vals, var til viðtals í gær á Fótbolti.net og var hann spurður út í Almar.
„Hann er geggjaður, geggjaður í klefanum og geggjaður í hóp. Hann er þvílíkt mikilvægur okkur, getur leyst allar stöður á vellinum, spilaði t.d. bakvörð í æfingaleik um daginn og gerði það fáránlega vel," sagði Birkir.
„Hann kemur inn í liðið á kantinn gegn Blikum, skilar mjög góðri frammistöðu og er frábær í alla staði," bætti Birkir við.
Valur vann 3-1 sigur gegn Breiðabliki og mætir næst KA fyrir norðan á morgun. KA er einmitt uppeldisfélag Almars.
Athugasemdir