Fotbolti.net
19.06.22 - 17:34
Sigríður Dröfn Auðunsdóttir

Ásdís Karen: Gerðum bara það sem þurfti og kláruðum þetta

Auglýsing
Ásdís Karen Halldórsdóttir

Ásdís Karen Halldórsdóttir

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz

„Mér fannst hann bara ágætur mér fannst við bara gera þetta vel og kláruðum bara leikinn í dag sem við þurftum að gera.“ Sagði Ásdís Karen Halldórsdóttir leikmaður Vals eftir 1-2 sigur Vals á Þrótti í Bestu deild kvenna í dag. 

Þegar Ásdís var spurð að því hvað hafi skilað sigrinum í dag sagði hún,

„Við bara börðumst vel og unnum fyrir þessu, við hefðum kannski mátt halda boltanum aðeins betur sérstaklega kannski á þriðja helming en við gerðum bara það sem þurfti og kláruðum þetta.”

Besta deild kvenna er nú rúmlega hálfnuð og framundan er sjö vikna hlé, Ásdís Karen sagði þetta að segja um fyrri hluta tímabilsins hjá Val og framhaldið,

„Mjög góður sko mér finnst bara mjög mikilvægt að fara inn í hléið með sigri og við bara höldum áfram eftir hlé eins og við erum búnar að vera gera.“.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan. 

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.