19.07.13 - 16:42
Hafliði Breiðfjörð
Benteke gerði fjögurra ára samning við Aston Villa (Staðfest)

Benteke verður áfram hjá Aston Villa.

Mynd: Getty Images

Benteke verður áfram hjá Aston Villa.

Mynd: Getty Images
Aston Villa tilkynnti á vef sínum rétt í þessu að framherjinn Christian Benteke hafi hætt við ósk sína um að verða seldur frá félaginu og framlengt samning sinn til ársins 2017.
Framherjinn hefur verið stöðugt orðaður frá félaginu í sumar eftir góðan árangur með liðinu á síðustu leiktíð.
,,Ég átti langar og hreinskilnar samræður við Christian Benteke þegar hann sneri aftur til æfinga í vikunni um framtíð hans,\" sagði Paul Lampbert stjóri Aston Villa.
,,Það er mín skoðun að það sé best fyrir Christian að vera áfram hjá Aston Villa. Hann átti frábæra fyrstu leiktíð hjá félaginu og getur nýtt sér það til að ná enn betri árangri á þessari leiktíð.\"
Benteke tjáði sig einnig sjálfur um þetta skref og sagði: ,,Ég talaði við stjórann þegar ég kom aftur til æfinga og við áttum góðar samræður. Ég er mjög ánægður með að vera kominn aftur hingað til Birmingham og Aston Villa og að skrifa undir nýjan samning.\"
,,Þetta er frábært félag og hefur gefið mér mikið. Núna verð ég að gefa til baka til liðsfélaganna og stuðningsmannana sem hafa alltaf staðið með mér.\"
,,Endalok síðustu leiktíðar voru mjög góð og drengirnir voru mjög sterkir. Það var ekki auðvelt en við komumst í gegnum það svo sjálfstraustið er mikið. Alir vita að hvað við þurfum að gera núna, að verða betri. Ég þarf að verða betri en í fyrra.\"

Heimild: Vefur Aston Villa