Fotbolti.net
19.07.13 - 17:55
Daníel Freyr Jónsson
Ítalska deildin

PSG keypti Marquinhos (Staðfest)

PSG keypti Marquinhos (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Frakklandsmeistarar PSG hafa gengið frá kaupunum á varnarmanninum Marquinhos frá Roma og skrifaði hann undir fimm ára samning.

Kaupverðið er talið nema 32 milljónum evra, en Marquinhos lék í eitt ár með Roma eftir að hafa komið frá Corinthians.
Marquinhos er fæddur árið 1994 og er PSG því að tryggja sér bráðefnilega varnarmann fyrir komandi ár. Hann lék 26 leiki með Roma og vakti þar gríðarlegann áhuga stærstu liða Evrópu með frammistöðu sinni.

,,Ég er í skýjunum með að ganga í raðir PSG, félag þar sem svo margir Brasilíumenn hafa spilað og hjálpað til við að skrifa sögu félagsins,\" sagði Marquinhos við undirskriftina.

,,Ég mun gera allt sem ég get til að halda þeirri hefð áfram og skrifa mitt eigið nafn í sögu félagsins.\"

Marquinhos er annar leikmaðurinn sem PSG fær í vikunni, en framherjinn Edinson Cavani kom frá Roma í byrjun vikunar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.